fimmtudagur, maí 05, 2005

Þýskaland á morgun

Enginn tími til að blogga þessa dagana og heldur ekki um helgina því ÉG er að fara til Þýskalands í fyrramálið. Strákarnir verða bara allir heima fyrir utan að Sigurgeir fer auðvitað í skólann.

Ég held það sé svona 25 stiga hiti úti, ekki alveg fyrir mig en hlakka rosalega til að hitta fólkið og sjá litlu krúsidúlluna sem fæddist í ágúst í fyrra.

Vona að Hlökk mín taki ekki uppá því að kasta þessa helgina, bíði þar til um næstu því þá er stefnan að komast í sauðburðinn í Miðhúsum, ekki má maður nú missa af neinu.

Og svo eru það garðverkin alla daga, það var mokað mold hingað og þangað í dag, ýmist út úr garðinum eða inn í hann og það sáu feðgarnir alveg um í dag, aðallega Beggi, Sigurgeir sá um ormana og Bjartmar þetta hefðbundna í öllu.

Selma